Innra-Hólmskirkja
Innra-Hólmskirkja

Organisti og kórstjóri

Hefur þú ástríðu fyrir kirkju- og kóratónlist í lifandi samfélagi?
Garða- og Saurbæjarprestakall leitar að skapandi og metnaðarfullum organista og kórstjóra til að taka við Kór Saurbæjarprestakalls. Ef þú ert lipur orgel- og píanóleikari, kraftmikill kórstjóri og tilbúinn að leiða fjölbreytt tónlistarstarf í söguríkum kirkjum sveitarinnar, þá er þetta tækifærið fyrir þig!
Starfið er hlutastarf. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026.
Helstu starfsskyldur:
Hljóðfæraleikur við helgihald í kirkjum prestakallsins: Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju.
Messur og athafnir: Messur eru að jafnaði tvisvar í mánuði (færri eða fleiri eftir helgidögum og kirkjuárinu) auk tilfallandi kistulagninga og útfara í sveitinni eftir samkomulagi.
Kórstjórn: Umsjón með kóræfingum og stjórnun Kórs Saurbæjarprestakalls.
Tónleikar og viðburðir: Skipulagning á reglulegum tónleikum og menningarviðburðum á vegum kórsins.
Fjölbreytt tónlistarval: Val á tónlist í samstarfi við kórinn og presta, þar sem rík áhersla er lögð á að blanda saman hefðbundinni kirkjutónlist og veraldlegri tónlist.
Hæfnikröfur:
Menntun í kirkjutónlist (kantorspróf eða sambærilegt) eða önnur tónlistarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Reynsla af kórstjórn og undirleik er skilyrði.
Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Áhugi á að vinna með fólki og byggja upp blómlegt menningarlíf í sveitinni.
Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Um starfsumhverfið:
Kór Saurbæjarprestakalls er samhentur og áhugasamur hópur sem syngur í þremur sögufrægum og fallegum kirkjum sveitarinnar. Í kirkjunum er rík tónlistarhefð og leitast er við að halda úti metnaðarfullu starfi þar sem bæði trúarleg og veraldleg tónlist fá að njóta sín. Organistinn vinnur í nánu samstarfi við sóknarprest og sóknarnefndir.
Hljóðfærakostur kirknanna er fjölbreyttur og skemmtilegur:
Hallgrímskirkja í Saurbæ orgeli og flygli.
Leirárkirkja er með gott pípuorgel.
Innra-Hólmskirkja geymir sjarmerandi harmoníum (fótstigið orgel).

Umsóknarferli:
Umsóknarfrestur er til 01. ágúst 2026
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um menntun og fyrri störf á netfangið [email protected]. [email protected] eða [email protected]
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Valdís: gsm 844-3075 / [email protected]
Lára: gsm 845-0317 /[email protected]
Guðjón:gsm 860-9041 [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Orgelleikur og kórstjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun í kirkjutónlist (kantorspróf eða sambærilegt) eða önnur tónlistarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.  Reynsla af kórstjórn og undirleik er skilyrði.

Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur1. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar