

Öflugur stuðningur óskast í Furuskógarteymið!
Við í leikskólanum Furuskógi leitum að metnaðarfullum og umhyggjusömum einstaklingi til að ganga til liðs við sérkennsluteymið okkar. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning við börn sem þurfa sérstaka aðstoð í leik og námi.
Leikskólinn er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum. Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Óskað er eftir einstaklingi með menntun/reynslu sem nýtist í starfi.
- Vera tilbúinn til þess að takast á við krefjandi hegðun barna
- Vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir - notast er við AEPS matstækið.
- Taka börn í málörvunarstundir
- Eiga gott samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa sem koma að máli barnanna.
- Sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Þora að takast á við krefjandi hegðun barna - reynsla æskileg.
- Geta til þess að vinna vel í teymi.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sveigjanleiki - erum að vinna í tveimur húsum.
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
- Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
- Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
- Samgöngustyrkur
- Menningarkort sem veitir aðgang aðsöfnum borgarinnar, ókeypis bókasafnskort og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
- Heilsuræktarstyrkur
Íslenska










