Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í sérverkefni á Akureyri

Vilt þú starfa við að auka öryggi viðskiptavina okkar?

Securitas á Akureyri leitar að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingum í spennandi tímabundið verkefni í staðbundinni gæslu. Í boði eru fjölbreytt verkefni í samstilltum hópi sem veitir viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Starfið felur í sér aðgangstýringu, móttaka boða og myndavélaeftirlit.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • Býrð yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu
  • Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni

...þá gætum við verið að leita af þér!

Um er að ræða tvær stöður í tímabundnu verkefni: Annars vegar fullt starf þar sem unnið er á 12 tíma vöktum á vaktakerfinu 5-5-4, ýmist dag- eða næturvöktum. Hins vegar er í boði fullt starf þar sem unnið er á á 12 tíma vöktum á vaktarkerfinu 5-5-4, á dagvöktum. Möguleiki er á áframhaldandi vinnu.

Við hvetjum öll kyn sem orðin eru 23 ára og eldri og eru með hreint sakavottorð til þess að kynna sér starfið nánar og sækja um. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast.

Umsóknarfrestur er til og með 18. júní næstkomandi. Nánar upplýsingar um starfið veitir Jónas Björnsson, útibússtjóri útibúsins á Akureyri í síma 580-7000.

Auglýsing birt5. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar