Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Aukavinna í öryggisgæslu

Viltu taka að þér aukavaktir sem öryggisvörður?

Öryggismiðstöðin óskar eftir öflugum og ábyrgum einstaklingum í hlutastarf sem öryggisverðir, bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Starfið hentar vel þeim sem eru í námi eða með aðra vinnu og vilja bæta við sig verkefnum með sveigjanlegum vinnutíma.

Vaktirnar eru breytilegar og geta verið stuttar til 12klst vaktir, bæði dag- og næturvaktir, og fara fram á fjölbreyttum starfsstöðum þar sem öryggi og fagmennska eru í forgrunni.

Helstu verkefni:

  • Reglulegt eftirlit með aðstöðu og umhverfi
  • Aðgangsstjórnun að viðkvæmum svæðum
  • Viðbrögð við neyðartilvikum og óvæntum atburðum
  • Fagleg samskipti og þjónusta við gesti og samstarfsfólk
  • Skráning atvika og viðbragða samkvæmt verklagi

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Geta unnið sjálfstætt og sýna frumkvæði
  • Eru reiðubúin til að mæta með stuttum fyrirvara
  • Hafa góða samskiptahæfni og faglega framkomu
  • Hafa reynslu úr öryggisgæslu eða vilja afla sér slíkrar reynslu

Hæfniskröfur:

Nauðsynlegt:

  • Gild ökuréttindi
  • Hrein sakaskrá
  • Góð enskukunnátta
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

Æskilegt:

  • Reynsla úr öryggis- eða þjónustustörfum
  • Þekking á skyndihjálp eða viðbragðsþjálfun

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Starfsmenn þurfa að skila inn sakavottorði og lágmarksaldur er 20 ára. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá.

Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á [email protected]

Would you like to be a part-time security guard?

Öryggismiðstöðin is looking for reliable and responsible individuals for part-time positions as Security Guards in the Reykjavík capital area and Reykjanesbær. This role is well-suited for students or individuals with other employment who are seeking flexible, shift-based work.

Shifts vary in length and can range from short call-outs to full 12-hour shifts, both day and night. The work takes place at a variety of client locations where professionalism and security are the top priorities.

Key responsibilities include:

  • Regular patrol and monitoring of premises and surroundings
  • Access control to sensitive or restricted areas
  • Responding to emergencies and unexpected incidents
  • Providing professional service and communication with guests and colleagues
  • Logging incidents and actions according to established procedures

We are looking for individuals who:

  • Work independently and take initiative
  • Are available on short notice
  • Possess strong communication skills and professional conduct
  • Have experience in security or are eager to gain such experience

Requirements:

Essential:

  • Valid driver’s license
  • Clean criminal record
  • Proficiency in English
  • Strong service orientation and interpersonal skills

Preferred:

  • Experience in security or service-related roles
  • Knowledge of first aid or emergency response procedures

All applications will be treated confidentially. Applicants must provide a recent criminal record certificate. The minimum age requirement is 20 years. A CV must be submitted with the application.

The position falls under the Manned Solutions division, which provides a wide range of services such as emergency dispatch, patrols, secure transport, and general on-site guarding for Öryggismiðstöðin’s clients.

We place great emphasis on delivering high-quality advice and tailored solutions.

Our core values — leadership, care, and trust — guide everything we do.

For more information, please contact [email protected]

Auglýsing birt23. júní 2025
Umsóknarfrestur14. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar