
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Öryggisfulltrúi
Ístak leitar að öryggisfulltrúa í fullt starf. Öryggisfulltrúi vinnur með öryggisstjóra og stjórnendum á verkum að því að auka þekkingu og tryggja eftirfylgni öryggismála í samræmi við stefnu félagsins. Starfið er umbótastarf, felur í sér leiðsögn og lausnaleit og krefst góðrar samskiptafærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Úttektir á öryggismálum á verkstöðum og hjá þjónustudeildum.
- Skráning og greining atvika og frávika.
- Áhættugreiningar.
- Fræðsla og kynningar fyrir starfsfólk.
- Utanumhald um skráningar á tækjum og búnaði tengdum öryggismálum og mælingum.
- Eftirfylgni með stefnu og markmiðum félagsins í málaflokknum.
- Aðstoð við gerð öryggis- og heilbrigðisáætlana hjá verkum og þjónustudeildum.
- Gerð fræðsluefnis.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun er kostur.
- Starfsreynsla úr byggingariðnaði er kostur, reynsla af öryggismálum er kostur.
- Góð Íslensku- og enskukunnátta.
- Geta til að fá aðra með sér, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna í hópi, áreiðanleiki, framúrskarandi samskiptahæfni og góð athyglisgáfa.
Auglýsing birt16. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)