Garðasókn
Garðasókn
Garðasókn

ÖFLUGUR ORGANISTI

Sóknarnefnd Garðasóknar auglýsir lausa stöðu organista/kórstjóra við sóknina. Um er að ræða fullt starf frá 1. ágúst 2026.

Í Garðasókn er fjölbreytt safnaðarstarf og messað hvern helgan dag. Tvær kirkjur eru í sókninni, Garðakirkja og Vídalínskirkja. Í sókninni starfa fjórir prestar, framkvæmdastjóri, kirkjuhaldari, ræstitæknir, kirkjuverðir og ungt fólk í æskulýðsstarfi, ásamt sóknarnefnd og sjálfboðaliðum.

Organista er falin tónlistarstjórn safnaðarins og gegnir afar mikilvægu hlutverki í kirkjustarfinu. Organisti stjórnar kirkjukórnum en barnakórar, unglingakór og gospelkór eru undir stjórn og leiðsögn annarra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Helstu starfsskyldur organista/kórstjóra eru:

    • Að undirbúa, leiða og stýra tónlistarstarfi kirkjunnar.
    • Að undirbúa og leika undir í helgihaldi, athöfnum og kirkjulegu starfi á vegum safnaðarins.
    • Er kórstjóri Kórs Vídalínskirkju, æfir kórinn, sér um utanumhald, mætingar ofl. Stjórnar kórnum í athöfnum, á tónleikum og við önnur tækifæri
    • Undirleikur í kyrrðarstundum, opnu húsi og styðja við annað safnaðarstarf í samstarfi við presta og starfsfólk sóknarinnar.
    • Undirleikur í starfi eldri borgara á hjúkrunarheimilum bæjarins auk annara tilfallandi verkefna.
    • Gerir messuskrár fyrir sérstakar messur, fermingar og hátíðarmessur.
    • Gerir fjárhagsáætlun fyrir allt tónlistarstarf, sem organisti sinnir, í upphafi árs
    • Hefur umsjón og eftirlit með hljóðfærum kirkjunnar.
    • Tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd menningarviðburða safnaðarins.
    • Tekur þátt í tónlistarsamstarfi á vegum Kjalarnessprófastsdæmis.

     

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kirkjutónlistarmenntun frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða öðru sambærilegu viðurkenndu námi.
  • Starfsmaðurinn þarf að hafa góða færni í mannlegum samskiptum, lipurð og sveigjanleika ásamt að búa yfir ríkri þjónustulund. Krafa er um stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, almenna tölvukunnáttu, trúmennsku í starfi, metnað til þess að takast á við mismunandi verkefni og getu til að vinna í teymi.
  • Reynsla af tónlistarflutningi við helgihald og kórstjórnun er æskilegt auk hugmyndaauðgi og listfengi.
  • Mikill áhugi á að byggja upp fjölbreytt og skemmtilegt tónlistar/menningarstarf í söfnuðinum.
  • Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO.
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kirkjulundur 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar