
Snyrtistofan Garðatorgi
Það hefur oft verið sagt að stofan okkar sé lítil og kósý. Við erum mjög sáttar við það og leggjum metnað í að viðskiptavinir okkar upplifi hverja komu sem dekur. Ef viðskiptavinum líður vel hjá okkur þá er tilganginum náð. Við leggjum okkur fram við að héðan gangi þeir út endurnærðir á líkama og sál, svolítið ánægðari en þegar þeir komu, og hlakki til að koma aftur.

Naglafræðingur
Vanur naglafræðingur með reynslu óskast. Vinnutími er sveigjanlegur og eftir samkomulagi.
Snyrtistofan á Garðatorgi leggur mikinn metnað í vönduð vinnubrögð, faglegt og gott andrúmsloft.
Vinsamlega sendið inn umsóknir fyrir 4. apríl 2026.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs.
www.snyrtistofangardatorgi.is
Menntunar- og hæfniskröfur
- Naglafræðingur
Auglýsing birt29. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

