
Blikksalan ehf.
Blikksalan býður upp á fjölbreytta blikksmíðaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við sérhæfum okkur í framleiðslu og uppsetningu á ýmiss konar blikksmíðavörum, þar á meðal loftræstikerfum. Með áralanga reynslu, fagþekkingu og metnað að leiðarljósi leggjum við áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu.

Metnaðarfullur og faglærður blikksmiður með reynslu / Experienced Sheet-Metal Worker
Blikksalan leitar að faglærðum, reyndum og metnaðarfullum blikksmið til að ganga til liðs við öflugt teymi fyrirtækisins
Við leitum að einstaklingi sem hefur faglegan metnað, býr yfir góðri reynslu og getur tekið virkan þátt í daglegri starfsemi blikksmiðjunnar frá fyrsta degi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framleiðsla og úrvinnsla á ýmiss konar blikksmíðaefni, m.a. með notkun CIDAN-véla, vinna við uppsetningu og frágang blikksmíðafurða. Önnur fjölbreytt verkefni í blikksmíði, þ.m.t. sérsmíði og uppsetning loftræstikerfa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lokið sveinsprófi í blikksmíði eða sambærilegu viðurkenndu námi erlendis sem metið er til jafngildis sveinsprófs á Íslandi.
-
Að lágmarki 3 ára starfsreynsla við blikksmíði.
-
Reynsla af notkun CIDAN-véla er skilyrði (lokið viðeigandi námskeiði eða fengið verklega þjálfun í notkun CIDAN-véla).
-
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna flókin verkefni innan teymis.
Fríðindi í starfi
Samkeppnishæf laun
Auglýsing birt21. nóvember 2026
Umsóknarfrestur28. desember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
BlikksmíðiSmíðar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


