Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Merkjastýra / Beauty Consultant

Merkjastýra er lykilhlutverk í versluninni og ber meginábyrgð á að hámarka sölu með öflugri sölutækni, frábærri þjónustu og jákvæðu viðmóti.

Starfið snýst um að nálgast farþega af öryggi, skapa tengingu og hámarka tekjur með markvissum sölusamtölum, krosssölu og aukasölu.

Merkjastýra tryggir ásýnd snyrtivörudeildarinnar sé alltaf til fyrirmyndar og tekur virkan þátt í daglegum verkefnum sem styðja sölu og upplifun viðskiptavina. Mikil áhersla er lögð á fagmennsku, frumkvæði og hæfni til að vinna í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.

Merkjstýra styður samstarfsfólk, bæði nýtt og reynt, og leggur sitt af mörkum til jákvæðrar, lausnamiðaðrar og samstilltrar vinnumenningar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sölumennska í snyrtivörudeild og sérþekking á ákveðnum vörumerkjum.
Áfylling, þrif og tryggja ásýnd sölusvæða.
Eftirlit með birgðastöðu í verslun.
Sækja þekkingu frá birgjum og miðla til annarra starfsmanna.
Önnur tilfallandi verslunarstörf.

Menntunar- og hæfniskröfur

Förðunarnám og/eða snyrtifræði er kostur
Góð þekking á snyrtivörum skilyrði
Framúrskarandi samskiptahæfni og fagleg vinnubrögð
Mikilvægt að geta unnið í teymi

Fríðindi í starfi

Líkamsræktarstyrkur
Bifreiðastyrkur
Mötuneyti

Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)