Matur og Drykkur
Matur og Drykkur
Matur og Drykkur

Matreiðslumaður óskast

Matur og drykkur leitar að metnaðarfullum og skapandi matreiðslumanni til að bætast í okkar frábæra teymi!

Matur og drykkur er metnaðarfullur veitingastaður í Reykjavík sem hefur verið í Michelin Guide um árabil. Við leggjum áherslu á íslenskt hráefni, árstíðabundna matargerð og skapandi nálgun á íslenskar matarhefðir.

Við leitum að einstaklingi með góða reynslu úr eldhúsi, brennandi áhuga á matargerð og metnað til að þróast í starfi. Við leggjum mikla áherslu á jákvætt starfsumhverfi, góða liðsheild og skapandi samstarf.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur góða reynslu af matreiðslu, helst úr metnaðarfullu veitingahúsaumhverfi.

  • Hefur ástríðu fyrir matargerð og vönduðu hráefni.

  • Er jákvæður, skipulagður og vinnur vel í hópi.

  • Hefur metnað til að læra, þróast og taka þátt í skapandi eldhússtarfi.

Við bjóðum upp á spennandi starf í metnaðarfullu og samhentu teymi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, sköpunargleði og góðan starfsanda.

Um fullt starf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun í matreiðslu

Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Mýrargata 31, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar