Isavia
Isavia
Isavia

Mannauðsstjóri

Viltu taka þátt í að tengja heiminn í gegnum Ísland hjá einu stærsta þjónustufyrirtæki landsins?

Isavia leitar að framsýnum mannauðsstjóra sem vill leiða þróun mannauðsmála í spennandi rekstrarumhverfi þar sem fagmennska, öryggi og þjónusta skipta sköpum.

Í þessu fjölbreytta starfi vinnur þú náið með framkvæmdastjóra mannauðs og menningar og öðrum stjórnendum félagsins að því að þróa mannauðslausnir sem styðja við stefnu Isavia, styrkja leiðtogahæfni og skapa framúrskarandi starfsumhverfi.

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri fagþekkingu, hefur góða samskiptahæfni og nýtur þess að leiða verkefni, styðja stjórnendur og vinna að umbótum sem skila raunverulegum árangri.

Af hverju þetta starf?

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á framtíð og fyrirtækjamenningu félagsins.
  • Tækifæri til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum hjá einu af stærstu þjónustufyrirtækjum landsins.
  • Tækifæri til að leiða áframhaldandi þróun mannauðsmála og fyrirtækjamenningar með öflugu og metnaðarfullu teymi.
  • Tækifæri til að starfa á vinnustað sem setur fyrirtækjamenningu og uppbyggilega hegðun í fyrsta sæti.

Helstu verkefni:

  • Leiða þróun mannauðs og fyrirtækjamenningar í samræmi við stefnu, rekstur og framtíðarsýn Isavia.
  • Vera stefnumótandi ráðgjafi framkvæmdastjórnar og stjórnenda í öllum mannauðstengdum málum.
  • Leiða og þróa öflugt mannauðsteymi.
  • Styðja stjórnendur í leiðtogahlutverki sínu.
  • Leiða umbætur og styðja innleiðingu mannauðsverkefna.
  • Ábyrgð á rekstri skrifstofa félagsins og mötuneytis starfsfólks á Keflavíkurflugvelli.
  • Leiða áframhaldandi þróun ráðninga, starfsþróunar og frammistöðumenningar sem styður við árangur félagsins.
  • Nýta mannauðsgögn og mælikvarða til að styðja við ákvarðanatöku og stöðugar umbætur.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi; framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála er kostur.
  • Umfangsmikil reynsla af mannauðsmálum og góð þekking á vinnumarkaði og starfsumhverfi íslensks vinnumarkaðar.
  • Sterk leiðtogahæfni og reynsla af því að leiða teymi, styðja stjórnendur og leiða árangursríkar breytingar.
  • Reynsla af stefnumótun og innleiðingu mannauðsverkefna ásamt mjög góðum skilningi á tengslum mannauðsmála og rekstrarárangurs.
  • Hæfni til að byggja upp traust og efla menningu sem styður árangur, vellíðan og þátttöku starfsfólks.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, sterk þjónustulund og geta til að vinna með fjölbreyttum hagsmunaaðilum.
  • Lausnamiðuð og greinandi hugsun, frumkvæði, metnaður til árangurs og góð skipulagshæfni.
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, jafnt í ræðu sem riti.

Isavia er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins og gegnir lykilhlutverki í að tengja heiminn í gegnum Ísland. Hjá félaginu starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem á hverjum degi leggur sitt af mörkum til lífsgæða og velsældar á Íslandi.

Árangur Isavia byggir á uppbyggilegri fyrirtækjamenningu. Félagið leggur ríka áherslu á að skapa framúrskarandi vinnustað þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa í starfi, þróa hæfni sína og leggja sitt af mörkum í umhverfi sem einkennist af ábyrgð, trausti og stöðugum umbótum.

Skrifstofur félagsins eru á Keflavíkurflugvelli og í Hafnarfirði.

Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst nk.

Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.


Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur23. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar