

Mannauðssérfræðingur
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf mannauðssérfræðings. Leitað er að úrræðagóðum og þjónustulunduðum einstaklingi á líflegan vinnustað með dreifða starfsemi. Viðkomandi yrði hluti af mannauðssviði ásamt sviðsstjóra og mannauðs- og launasérfræðingi. Stofnunin er ný og í starfinu gefst tækifæri til að hafa mikil áhrif á uppbyggingu mannauðsmála og vinnustaðamenningar.
Höfuðstöðvar Náttúruverndarstofnunar eru á Hvolsvelli sem yrði meginstarfsstöð mannauðssérfræðings með möguleika á fjarvinnu eða viðveru á annarri starfsstöð stofnunarinnar á móti viðveru á Hvolsvelli. Starfsstöðvar Náttúruverndarstofnunar eru alls 15 og staðsettar víða um land. Starfsstöðin á Hvolsvelli er við Austurveg 4 en í húsinu er fjölbreytt og lífleg starfsemi.
-
Umsjón með ráðningum sumarstarfsfólks og stuðningur við stjórnendur landvörslusvæða við ráðningar og val á starfsfólki
-
Kynning og efling á störfum í nágrenni náttúruverndarsvæða
-
Gerð ráðningarsamninga og samskipti við nýtt starfsfólk
-
Umsjón með fatnaði fyrir starfsfólk, innkaup og samskipti við birgja í samvinnu við annað starfsfólk
-
Skipulag og yfirsýn með móttöku og þjálfun sumarstarfsfólks í samvinnu við annað starfsfólk
-
Móttaka nýs starfsfólks, upplýsingagjöf og gagnaöflun við upphaf starfs og frágangur við starfslok
-
Umsjón með innri fræðslustarfsemi og starfsþróunaráætlunum
-
Þróun og innleiðing mannauðsstefnu og -ferla í mannauðs- og launamálum í samvinnu við annað starfsfólk á mannauðssviði
-
Þátttaka í öðrum mannauðsmálum svo sem ráðningum, mótun vinnustaðamenningar og úrvinnslu og eftirfylgni vinnustaðagreininga í samvinnu við sviðsstjóra
-
Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur á sviði mannauðs- og launamála
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af störfum við mannauðsmál er mikill kostur
-
Þekking á Orra, mannauðs- og launakerfi ríkisins, og Vinnustund er kostur
-
Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og þjónustulund
-
Skipulagsfærni og geta til að hafa yfirsýn með mörgum verkefnum samhliða
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Gott vald á íslensku og ensku
-
Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum er kostur
