Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Mannauðsfulltrúi

Sem sérfræðingur í mannauði og menningu (People & Culture Generalist) berð þú ábyrgð á að leiða og styðja lykilverkefni í mannauðsmálum innan fyrirtækisins, tryggja jákvæða upplifun starfsfólks og styrkja fyrirtækjamenningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra ráðningarferlum í samstarfi við stjórnendur, þar á meðal sjá um ráðningarsamninga og styðja við móttöku nýrra starfsmanna.
  • Leiða fræðslu- og þróunarverkefni, þar á meðal innleiðingu fræðsluefnis og undirbúning árangursmælikvarða (KPIs) fyrir starfsfólk.
  • Veita stjórnendum stuðning sem ráðgjafi í agamálum, erfiðum samtölum og almennri leiðtogafærni.       
  • Umsjón með skipulagi og úthlutun einkennisfatnaðar starfsfólks
  • Tryggja að farið sé eftir lögum og reglum í mannauðsmálum.
  • Stuðla að jákvæðri og innleiðandi menningu með áherslu á fjölbreytileika, jöfnuð og inngildingu í samræmi við fjölbreytileikasáttmála fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynslu af sambærilegu starfi.
  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli, til að geta starfað í alþjóðlegu og fjölmenningarlegu umhverfi.
  • Sterka skipulagshæfni ásamt lausnamiðaðri og framkvæmdadrifinni nálgun til að takast á við áskoranir og daglegan rekstur af öryggi.
  • Frumkvæði og hæfni til að bæta stöðugt ferla og menningu, auk þess að vera opin(n) fyrir breytingum sem nauðsynlegar eru til að leiða og styðja umbreytingarverkefni.
  • Reynsla af greiningu og skýrslugerð í mannauðsmálum, auk skipulagningar og framkvæmdar á fræðslu- og þróunarverkefnum.
Auglýsing birt23. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar