Embætti borgarlögmanns
Embætti borgarlögmanns
Embætti borgarlögmanns

Lögmaður við embætti borgarlögmanns

Starf lögmanns hjá embætti borgarlögmanns er laust til umsóknar.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum lögfræðinnar og sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsfólks. Hjá embætti borgarlögmanns, sem er með aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur, starfa níu lögmenn auk verkefnastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Lögfræðileg ráðgjöf, þ.m.t. álitsgerðir og umsagnir til borgarstjórnar, borgarráðs, innkaupa- og framkvæmdaráðs, borgarstjóra, sviða og stofnana Reykjavíkurborgar
  • Fyrirsvar og hagsmunagæsla fyrir Reykjavíkurborg og stofnanir hennar fyrir dómstólum og eftirlits- og úrskurðaraðilum
  • Undirbúningur dómsmála og málflutningur
  • Meðferð stjórnsýslumála
  • Meðferð innkaupamála
  • Samningagerð, yfirlestur samninga og önnur skjalagerð
  • Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn Reykjavíkurborg
  • Uppgjör slysa- og skaðabótakrafna á grundvelli kjarasamninga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
  • Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum
  • Góð þekking á stjórnsýslurétti
  • Reynsla af málflutningi æskileg
  • Sveigjanleiki og hæfni til að afla sér nýrrar þekkingar og setja sig inn í ólíka málaflokka
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 skv. samevrópska tungumálarammanum og góð færni í að setja mál fram í ræðu og riti
  • Skipuleg og fagleg vinnubrögð
  • Heilindi, jákvæðni og lipurð í samskiptum
Fríðindi í starfi

Heilsuræktarstyrkur

Samgöngustyrkur

36 stunda vinnuvika

Sveigjanlegur vinnutími

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar