KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.

Lögfræðingar hjá KPMG Law

Lögfræðingar hjá KPMG Law

KPMG Law leitar að metnaðarfullum, lausnamiðuðum og jákvæðum lögfræðingum sem hafa áhuga á fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í framsæknu og faglegu starfsumhverfi.

Við störfum í nánu samstarfi við sérfæðinga KPMG á sviði fjármála, rekstrar og endurskoðunar sem gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar heildstæða og fjölbreytta ráðgjöf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn lögfræðiráðgjöf fyrir viðskiptavini KPMG.
  • Samninga- og skjalagerð við framkvæmd og frágang viðskipta.
  • Ráðgjöf og þjónusta tengd fyrirtækjarekstri, kaupum, sölum og fjármögnun fyrirtækja.

Hæfniskröfur:

  • Meistaragráða í lögfræði.
  • Reynsla af viðskipta-, fjármála- og/eða fyrirtækjalögfræði er kostur.
  • Umfangsmikil þekking og reynsla af skjalagerð ýmissa fjármálagerninga og veðskjala er kostur.
  • Brennandi áhugi á rekstri og fjármálum fyrirtækja.
  • Þekking og áhugi á stafrænni þróun og nýrri tækni er mikill kostur.
  • Framúrskarandi hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Metnaður og geta til að takast á við krefjandi verkefni og vinna undir álagi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og sterk þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

KPMG Law ehf.

KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG og ein af leiðandi stofunum á sviði fyrirtækjalögfræði á Íslandi. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og í dag starfa hjá okkur á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og sérfræðinga. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:

  • Fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu umhverfi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptalífið og samfélagið í heild.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og fjölbreyttum velferðarúrræðum.
  • KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
  • Aðgengi að golfklúbbi með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á [email protected].

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar