

Leitum að öflugum Þjónustufulltrúa í heilbrigðisþjónustu á sviði myndgreiningar
Við leitum að öflugum þjónustufulltrúa í fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf innan heilbrigðisþjónustu á sviði myndgreiningar. Samskipti við sjúklinga og lækna, úrvinnsla tilvísana og skipulagning rannsókna eru meðal lykilverkefna starfsins.
Um er að ræða lifandi og krefjandi starf þar sem góð samskipti, skipulag og nákvæmni skipta miklu máli. Starfið hentar einstaklingi sem á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni samtímis, heldur góðri yfirsýn og forgangsraðar vel þegar mikið er að gera.
• Afgreiðsla og úrvinnsla tilvísana í myndgreiningarrannsóknir
• Skipulagning og tímabókanir rannsókna
• Símaþjónusta og önnur samskipti við sjúklinga og lækna
• Vinna í rafrænum upplýsingakerfum
• Önnur verkefni tengd daglegri starfsemi
Við leitum að einstaklingi sem
• hefur ríka þjónustulund og jákvætt viðmót
• á auðvelt með mannleg samskipti og sýnir nærgætni og fagmennsku
• er skipulagður, nákvæmur og góður í að forgangsraða
• á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni samtímis
• sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• hefur góða tölvukunnáttu og á auðvelt með að tileinka sér ný upplýsingakerfi
• hefur mjög góða kunnáttu í íslensku og góða kunnáttu í ensku
Menntun sem nýtist í starfi æskileg. Heilbrigðisgagnafæðingur, reynsla af heilbrigðisþjónustu eða sambærilegum þjónustustörfum er kostur. Reynsla af rafræna sjúkraskrárkerfinu Sögu er sérstaklega mikill kostur.
Við bjóðum fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í faglegu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem góð þjónusta við sjúklinga og lækna er í fyrirrúmi. Viðkomandi verður mikilvægur hluti af daglegri starfsemi og vinnur með öflugu teymi að skilvirku flæði og vandaðri þjónustu.
Íslenska
Enska
