
Leikskólinn Ylur auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra
Leikskólinn Ylur auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra til afleysingar í eitt ár frá og með næstu áramótum með möguleika á áframhaldandi starfi á leikskólanum. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt stjórnunarstarf með tækifæri til faglegar starfsþróunar.
Leitað er að leikskólakennara með leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að taka þátt í að leiða áfram metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans.
Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit samrekinn Reykjahlíðarskóla. Í leikskólanum eru 24 börn á aldrinum 1 – 5 ára. Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar í Mývatnssveit.
Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan leikskólakennara. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi og hæfni til að veita faglega forystu.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um góða hæfni í mannlegum samskipum, stundvísi, hreint sakarvottorð og góða íslenskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL (Félags Stjórnenda á Leikskólum)
Sveitarfélagið býður fram aðstoð við að finna íbúðarhúsnæði við hæfi.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Huld Aðalbjarnardóttir, [email protected]
Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://reykjahlidarskoli.is/leikskoli
• Faglegur leiðtogi og stuðningur við aðra starfsmenn leikskólans.
• Dagleg stjórnun og skipulagning kennslu- og uppeldisstarfsins.
• Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
• Sinnir starfi deildarstjóra leikskólans.
• Virkur þátttakandi í mótun stefnu leikskólans og áætlunargerð með skólastjóra.
• Samskipti og samvinna við foreldra.
• Sinna öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri felur honum.
• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
• Góð reynsla af starfi í leikskóla.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Mjög góð hæfni og lipurð í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
• Góð íslenskukunnátta.
• Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu.
• Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum.
• Er lausnamiðað og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu.
• Hefur reynslu/menntun af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
Íslenska