

Leikskólinn Drekadalur - Kennarar
Vilt þú vera hluti af öflugu teymi þar sem gleði, leikur og fagmennska leiða veginn ? Kennarar óskast í Drekadal.
Nýr leikskóli, leikskólinn Drekadalur í Innri Njarðvík leitar eftir drífandi, skipulögðum og jákvæðum kennurum í okkar frábæra teymi þar sem starfsandinn í Drekadal er góður og einkennist af virðingu, jákvæðni, gleði og góðri samvinnu. Um fjölbreytt framtíðarstörf er að ræða sem krefst góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.
Leikskólinn Drekadalur verður 120 barna skóli þegar hann verður fullsetin. Í Drekadal er lögð áhersla markvissa málörvun, flæði og útikennslu ásamt leik barna sem er gert hátt undir höfði í skapandi námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er gleði, leikur, virðing og hugrekki.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
- Vinna að uppeldi, umönnun og menntun barna í samræmi við stefnu leikskólans.
- Taka virkan þátt í skipulagningu og þróun skólastarfs.
- Stuðla að jákvæðu og árangursríku samstarfi við foreldra og forsjáraðila í samráði við deildarstjóra.
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu og í samráði við næsta yfirmann.
- Efla og viðhalda fagþekkingu með reglubundinni sí- og endurmenntun.
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari (skal fylgja umsókn).
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er kostur.
- Einlægur áhugi á velferð og velgengni allra barna.
- Færni í samskiptum, sveigjanleiki og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður.
- Stundvísi og góð skipulagshæfni.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










