
Fagrabrekka
Leikskólinn Fagrabrekka er fjögra deilda leikskóli þar sem dvelja um 70 börn. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en mikil áhersla er lögð á að börnin læri af reynslu. Leikskólinn hefur sett þau markmið bæði börn og starfsfólk beri virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og að sýna gleði og frumkvæði í leik og starfi.
Í Fögrubrekku reynum við að láta börnin fylgja sínum hóp, bæði börnum og kennurum, í gegnum skólagönguna. Það stuðlar að því að börnin mynda sterk tengsl bæði við leikfélaga sína og kennara. Einnig hjálpar þetta við að byggja upp gott samband á milli leikskóla og foreldra, þar sem við kynnumst vel á þeim árum sem börnin eru í leikskólanum.

Leikskólakennari óskast
Við leitum að jákvæðum, stundvísum og ábyrgum leikskólakennara til að ganga til liðs við okkar metnaðarfulla og fjölbreytta starfsmannahóp þar sem frumkvæði , vinátta og gleði er við völd á hverjum degi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Starfið felur í sér almenna kennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta.
- Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fagrabrekka 26, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniKennslaMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Verkefnastjóri listasmiðju (atelierista)
Leikskólinn Maríuborg

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Kennari óskast til starfa - frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Deildarstjóri óskast í Kópahvol vegna stækkunar
Kópahvoll

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Seljaborg