
Leikskólinn Seljaborg
Í Seljaborg dvelja 48 börn samtímis á þremur deildum. Á Lundi eru yngstu börnin, á Læk og Tjörn eru eldri börnin. Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi, við hliðina á Ölduselsskóla. Umhverfið er fallegt og ákaflega fjölbreytt með rennandi vatni, trjám og ýmsum gróðri sem bíður upp á ótal útivistarmöguleika.
Eikunnarorð Seljaborgar eru virðing, jákvæðni, traust og gleði. Við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti og náungarkærleika og að öllum börnum sé gert jafnt undir höfði.
Í Seljaborg dvelja 48 börn samtímis á þremur deildum. Á Lundi eru yngstu börnin, á Læk og Tjörn eru eldri börnin. Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi, við hliðina á Ölduselsskóla. Umhverfið er fallegt og ákaflega fjölbreytt með rennandi vatni, trjám og ýmsum gróðri sem bíður upp á ótal útivistarmöguleika.
Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa frá og með haustinu 2025
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa við leikskólann Seljaborg, Tunguseli 2, 109 Reykjavík. Seljaborg er þriggja deilda leikskóli og þar dvelja 48 börn.
Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágreninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.
Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni í Seljaborg. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi. Í Seljaborg er vinnuvikan 36 stundir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og áherslum leikskólans, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
- Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
- Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
- 36 stunda vinnuvika.
- Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Tungusel 2, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiKennariMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla í ágúst
Arnarskóli

Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Heimilisfræðikennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2025-2026
Álfhólsskóli

Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri í tómstundamiðstöð - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennsla og stuðningur Seljakot
Leikskólinn Seljaborg

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Viltu bætast við í hópinn - okkur vantar leikskólakennara í Stakkaborg
Leikskólinn Stakkaborg