

Leiðsögumaður í hjólaferðum - Icelandic Mountain Guides
Icelandic Mountain Guides by Icelandia leitar að jákvæðum og ábyrgum leiðsögumanni til að taka þátt í spennandi og fjölbreyttu starfi á Ytri-Sólheimum. Hlutverið felur í sér að leiða fjórhjóla- og buggyferðir um stórbrotið landslag Sólheimasands og við Mýrdalsjökul – þar sem náttúran sjálf er vinnustaðurinn. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja sameina útivist, öryggi og upplifun í starfi.
Um er að ræða tímabundna stöðu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
- Leiðsögn á fjórhjóli og buggy bílum á svæðinu.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af leiðsögn.
- Gild ökuréttindi B eru nauðsynleg; D réttindi er kostur
- Jöklaleiðsöguréttindi og íshellaleiðsöguréttindi eru kostir.
- Góð færni í ensku í töluðu máli er skilyrði.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, snyrtimennska og stundvísi.
- Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð.
- Fjölbreytt verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
- Möguleikar á vöxt í starfi.








