
Tindasel - The Farm
Tindasel is a boutique countryside hotel in South Iceland, focused on high-end, intimate guest experiences and personal service. The hotel is part of the Deluxe Iceland serving international guests seeking authenticity, exceptional hospitality and new adventures.

Leiðsögumaður fyrir buggy-ferðir og afþreyingu á Tindaseli
Tindasel leitar að öflugum og þjónustulunduðum leiðsögumanni til að sjá um buggy-ferðir og aðra afþreyingu fyrir hótelgesti okkar eftir þörfum.
Um er að ræða hlutastarf eða verktakavinnu þar sem leiðsögumaður er kallaður til þegar ferðir eru bókaðar. Starfið hentar því vel samhliða öðru starfi eða námi.
Reynsla af buggy-bílum, fjórhjólum eða sambærilegri afþreyingu er mikill kostur. Skyndihjálparþekking og viðeigandi réttindi eru einnig kostur.
Fyrirkomulag
- Ekki er um fast starfshlutfall að ræða
- Vinna fer fram þegar ferðir eru bókaðar
- Ferðir taka að jafnaði um 2–2,5 klukkustundir, auk undirbúnings og frágangs
- Leiðsögumaður fær upplýsingar um bókaðar ferðir með fyrirvara
- Greiðslur og annað fyrirkomulag eru samkvæmt samkomulagi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að undirbúa og leiða buggy-ferðir frá Tindaseli
- Að taka vel á móti gestum og kynna ferðina, búnaðinn og öryggisreglur
- Að tryggja öryggi og góða upplifun þátttakenda
- Að leiðsegja gestum um svæðið, þar sem meðal annars er ekið yfir ár.
- Að ganga frá buggy-bílum og öryggisbúnaði eftir ferðir
- Að sjá eftir þörfum um aðra afþreyingu fyrir hótelgesti
- Að eiga gott samstarf við gestgjafa og stjórnendur Tindasels
Menntunar- og hæfniskröfur
- Er jákvæður, ábyrgur og með ríka þjónustulund
- Hefur reynslu af leiðsögn, ferðaþjónustu eða útivist
- Er öruggur í samskiptum og á auðvelt með að leiða hópa
- Talar góða ensku; íslenska og önnur tungumál eru kostur
- Hefur gild ökuréttindi
- Er sveigjanlegur og getur tekið að sér ferðir eftir bókunum
- Getur unnið á virkum dögum og um helgar eftir þörfum
- Setur öryggi, fagmennsku og upplifun gestanna ávallt í fyrsta sæti
Auglýsing birt14. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tindasel Lodge
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (9)

Ökuleiðsögumaður/Prívat Lúxus ferðir
Deluxe Iceland

Leiðsögumaður - Fjórhjól við Litlu kaffistofuna
Icelandia

Rekstrarstjóri dagsferða
Icelandia

Kínverskumælandi leiðsögumaður
Icelandia

Travel consultant - Ferðaráðgjafi
Nonni Travel

Ökuleiðsögumenn: Day Tours & Northern Lights. Driver-Guides: Day Tours & Northern Lights Tours
BusTravel Iceland ehf.

Join Our Fantastic Team at Perlan!
Perlan

Mandarin Speaking Sales Associate KEF - Airport
66°North

Leiðsögumaður í norðurljósaferðum
Icelandia