
Landvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs - vetrartímabil
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins og fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.
Starfssvæði suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Fjallsárlóni að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Helsta starfsstöð landvarða er við Jökulsárlón. Veturinn er annasamur á suðaustursvæði vegna íshella- og jöklaferðamennsku.
Um er að ræða tímabundið starf til 30. apríl 2027.
- Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu
- Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.
- Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða og umhirða svæða.
- Smærri framkvæmdir og önnur tilfallandi verkefni.
- Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum, atvinnustarfsemi og viðburðum.
- Landvarðaréttindi, gild ökuréttindi
- Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.
- Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.
- Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki.
- Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi.
- Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða, t.d. náttúrutúlkun er kostur.
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
- Þjálfun í jöklaleiðsögn er kostur, t.d. jöklaleiðsögn 1-3 eða sambærilegt nám.
Íslenska
Enska