Ungmennafélagið Stjarnan
Ungmennafélagið Stjarnan

Knattspyrnudeild Stjörnunnar – Yfirþjálfari yngri flokka

Knattspyrnudeild Stjörnunnar leitar að drífandi og öflugum yfirþjálfara í fullt starf. Hlutverk yfirþjálfara er að leiða faglegt starf barna- og unglinga knattspyrnudeildarinnar, styðja við þjálfara og tryggja samfellda og markvissa þróun leikmanna frá yngstu flokkum og alla leið upp í meistaraflokka.

Þetta er spennandi og fjölbreytt starf í metnaðarfullu umhverfi þar sem reynir á leiðtogahæfileika, fagmennsku og sterka samskipta- og skipulagshæfni. Yfirþjálfari vinnur náið með þjálfurum, framkvæmdastjóra, starfsfólki, foreldrum og stjórn að því að efla starfsemi deildarinnar og skapa framúrskarandi umhverfi fyrir iðkendur og þjálfara.

Yfirþjálfari ber ábyrgð á faglegri stefnumótun og framkvæmd þjálfunar í barna- og unglingastarfi. Hann tryggir samfellu í þjálfun, leikstíl og verklagi milli flokka, leiðir þróun þjálfara og stuðlar að því að Stjarnan verði áfram í fremstu röð.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Leiða faglegt starfs barna- og unglingastarfs knattspyrnudeildar

·       Styðja við og þróa þjálfara með markvissri handleiðslu og fræðslu

·       Tryggja samfellu í þjálfun, leikstíl og verklagi milli flokka og aldursstiga

·       Taka virkan þátt í þjálfun á vellinum og vera sýnilegur í daglegu starfi með þjálfurum og          iðkendum

·       Hafa umsjón með greiningar- og afreksstarfi, markmiðasetningu og eftirfylgni með                  þróun leikmanna

·       Leiða leikmannaþróun og tryggja skýra leið leikmanna frá yngri flokkum upp í                          meistaraflokka

·       Skipuleggja og samræma starfsemi í samstarfi við starfsmenn félagsins

·       Efla samskipti og upplýsingagjöf til foreldra og vinna með foreldraráðum.

·       Tryggja fagleg vinnubrögð, skráningar og notkun þeirra tæknilausna sem styðja við                  starfsemina.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       KSÍ A-gráða (UEFA A) og/eða UEFA Elite Youth A-gráða

·       Reynsla af þjálfun barna og unglinga er skilyrði

·       Mikil hæfni í mannlegum samskiptum ásamt sterkum leiðtoga- og skipulagshæfileikum.

·       Frumkvæði, jákvætt viðhorf og metnaður til að ná árangri

·       Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

Auglýsing birt23. júlí 2026
Umsóknarfrestur30. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ásgarður, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar