Kirkjuhvoll Hjúkrunar- og dvalarheimili
Kirkjuhvoll Hjúkrunar- og dvalarheimili

Kirkjuhvoll hjúkrunarheimili auglýsir eftir yfirmanni í eldhúsi

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér starf yfirmanns í eldhúsi. Um er að ræða 100% starf með ábyrgð á daglegum rekstri eldhúss, skipulagningu vinnu og leiðsögn starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

* Umsjón með daglegum rekstri eldhúss
* Skipulagning og stjórnun vinnu starfsfólks
* Tryggja gæði, hreinlæti og öryggi í samræmi við reglur
* Matseðlagerð og eftirfylgni með innkaupum eftir því sem við á
* Þátttaka í matargerð og þjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:
* Iðnmenntun sem nýtist í starfinu s.s. matreiðslupróf, matsveinn, matartækni eða starfsnám tengt matargerð er kostur
*Þekking/reynsla af rekstri mötuneytis ásamt mannaforráðum er kostur
*Þekking/reynsla af næringarfræði, sérþörfum, gæðum og fjölbreytileika matar er kostur
*Góð almenn tölvukunnátta
*Góð kunnátta í íslensku og ensku
*Góð hæfni í mannlegum samskiptum
*Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni

Fríðindi í starfi

* Fjölbreytt og krefjandi starf
* Gott starfsumhverfi og öflugt teymi
* Tækifæri til að hafa áhrif á starfsemina

Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalsbakki 10, 860 Hvolsvöllur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Eldhússtörf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar