
Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla
Auglýst er eftir kennarar á unglingastigi með deildarstjórn í 80-100% starf. Miðað er við ca 60-70% kennslu á móti deildarstjórn. Sérstaklega er leitað eftir kennara sem er vanur að kenna á þessum stigum. Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur í 1.-10. bekk. Mikil áhersla er á útinám og að þróa skólastarf sem að kemur til móts við nemendur með einstaklingsbundnum hætti. Skólinn er staðsettur í Árnesi um 30 mínútur frá Selfossi.
-
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
· Áhugi á að starfa með börnum.
· Hæfni í mannlegum samskiptum.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Áhugi á skólaþróun.
· Faglegur metnaður.
· Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Reynsla af teymisvinnu er mikilvæg.
· Reynsla af deildarstjórn er kostur.
· Mjög góð íslenskukunnátta.
Íslenska










