Knattspyrnufélag Akureyrar
Knattspyrnufélag Akureyrar
Knattspyrnufélag Akureyrar

Íþróttastjóri KA

Aðalstjórn Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, auglýsir til umsóknar starf íþróttastjóra félagsins. Íþróttastjóri er lykilhlutverk í starfsemi félagsins og heyrir beint undir framkvæmdastjóra.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka tengingu við íþróttir, skilur virkni íþróttafélaga, er með sterka leiðtogahæfileika, sýnir frumkvæði og hefur góða samskiptahæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma. Launakjör eru samkeppnishæf.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Umsóknir skulu sendar á póstfangið [email protected] og þurfa þær að innihalda starfsferilskrá ásamt ítarlegu kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Nánari upplýsingar veitir Sævar Pétursson ([email protected] - 690-4232), framkvæmdastjóri KA.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með ferðum félagins og tryggja góð samskipti milli deilda.
  • Halda utan um bókanir og skipulag íþróttastarfs í mannvirkjum KA.

  • Utanhald um fjáraflanir, aðstoða við heimaleiki og styrkja umsóknir.

  • Samskipti við Akureyrarbæ, skóla, ÍBA og sérsambönd ÍSÍ í samvinnu við framkvæmdastjóra.

  • Umsjón og vinna við fyrirmyndarfélag ÍSÍ, ferðajöfnunarsjóð og tilnefningar til ÍBA/ÍSÍ.

  • Vinna við umsjón varðandi mótahald félagsins, viðburði, Abler og leikjaskóla.

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla innan úr íþróttahreyfingunni og þekking á starfsemi íþróttafélaga.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð tölvukunnátta, þekking á Abler er kostur. Uppsetning á kynningum og skýrslugerð.
  • Leiðtogafærni, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
  • Samviskusemi, nákvæmni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsbraut 147480, 600 Akureyri
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar