Distica
Distica
Distica

Innkaupafulltrúi með áherslu á greiningar

Vilt þú nýta gögn til að bæta innkaup, birgðastýringu og þjónustu?

Við hjá Distica leitum að öflugum og metnaðarfullum innkaupafulltrúa sem hefur brennandi áhuga á og reynslu af gagnagreiningu, innkaupum og birgðastýringu.

Í starfinu færðu tækifæri til að vinna með umfangsmikil gögn, greina tækifæri og styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku. Viðkomandi verður mikilvægur hluti af teymi sem vinnur að því að tryggja réttar birgðir, gott vöruframboð og skilvirka þjónustu á heilbrigðismarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með innkaupum og birgðastýringu fyrir umbjóðendur Distica.
  • Greining sölu-, innkaupa- og birgðagagna.
  • Spágerð og greining á eftirspurn.
  • Eftirfylgni með birgðastöðu, framboði og afhendingargetu.
  • Gerð greininga og tillagna sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku.
  • Vinna náið með hagaðilum og umbjóðendum.
  • Samskipti og samstarf við innlenda og erlenda birgja.
  • Virk þátttaka í umbótum og áframhaldandi þróun gagnadrifinnar innkaupastýringar hjá Distica.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð Excel-kunnátta.
  • Reynsla af innkaupum, birgðastýringu, áætlanagerð eða gagnagreiningu.
  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að miðla niðurstöðum greininga á skýran hátt.
  • Reynsla af greiningartólum, svo sem Power BI, er kostur.
  • Reynsla af notkun BC og AGR eða sambærilegum kerfum er kostur.
  • Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, góð samskiptahæfni og áhugi á umbótum og þróun.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BI
Starfsgreinar
Starfsmerkingar