Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Innheimtufulltrúi / verkefnastjóri

Laust er til umsóknar starf innheimtufulltrúa/verkefnastjóra á fjármála- og stjórnsýslusviði Borgarbyggðar. Um tímabundna afleysingu er að ræða til eins árs.

Starfsmaður ber ábyrgð á útgáfu reikninga og innheimtu sveitarfélagsins og stofnana þess. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna fjölbreyttum verkefnum á fjármála- og stjórnsýslusviði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á útgáfu og útsendingu reikninga og umsjón með allri innheimtu sveitarfélagsins og stofnana þess.
  • Umsjón með innheimtuaðgerðum.  
  • Álagning fasteignagjalda og breytingar á álagningu þeirra.
  • Upplýsingagjöf og samskipti við forstöðumenn og aðra viðskiptavini.
  • Ýmis tilfallandi verkefni og afleysing annarra starfa á fjármála- og stjórnsýslusviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af fjármálatengdum störfum, s.s. innheimtu eða bókhaldi
  • Þekking og reynsla af Microsoft Dynamics 365 (BC) eða sambærilegu bókhaldskerfi
  • Mjög góð færni í excel og word, auk góðrar almennrar tölvuþekkingar
  • Talnagleggni, skipulagshæfni, vandvirkni og nákvæmni
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og sveigjanleiki
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar