Icelandia
Icelandia
Icelandia

Hugbúnaðarsérfræðingur

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að reynslumiklum og tæknilega sterkum einstaklingi í teymið á upplýsingatæknisviði. Starfið felur í sér hönnun og þróun á bakendalausnum í Microsoft umhverfi með áherslu á .NET (C#), Azure þjónustur (App Services, Functions, Service Bus) og sjálfvirknivæðingu í gegnum CI/CD.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Verkefnin snúa að kjarnakerfum sem styðja við stafræna umbreytingu í flóknum ferðaþjónustukerfum. Viðkomandi mun leiða þróunarvinnu með áherslu á bakenda og bera lykilábyrgð á tæknilegum ákvörðunum, þróunarferlum og samvinnu innan teymis og við samstarfsaðila. Þetta er ekki formleg stjórnendastaða, en krefst leiðtogahugsunar, frumkvæðis og sterkrar sýnar á góðar hugbúnaðarlausnir.

Um Icelandia
Icelandia er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og sameinar öflug vörumerki á borð við Reykjavík Excursions, Íslenska fjallaleiðsögumenn og DIVE.IS. Við byggjum lausnir sem styðja við fjölbreyttan og krefjandi rekstur í ferðaþjónustu og afþreyingu.

Hjá okkur færð þú tækifæri til að þróa lausnir sem snerta upplifun þúsunda gesta á hverjum degi – í lifandi umhverfi þar sem tæknin og íslensk náttúra mætast. Við fjárfestum í stafrænum umbótum og leitum að tæknifólki sem vill taka þátt í að móta framtíð ferðaþjónustu á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun, þróun og viðhald á bakendalausnum.
  • Leiða tæknilega hönnun og framþróun kerfa.
  • Setja stefnu og styðja við innleiðingu á þróunarferlum.
  • Samstarf við innri og ytri aðila um gamlar sem nýjar lausnir.
  • Tækniþróun með áherslu á rekstraröryggi, sveigjanleika og sjálfvirkni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði.
  • Góð þekking og reynsla í forritun og hugbúnaðarþróun, sérstaklega í .NET/C# og Azure.
  • Reynsla af event-driven arkitektúr.
  • Gott frumkvæði og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Metnaður fyrir gæðum og skýrum ferlum.
  • Talar og skilur íslensku og hefur góða enskukunnáttu.
Fríðindi í starfi
  • Sterkt, faglegt og samhent teymi.
  • Möguleika á að hafa áhrif á stefnu og tækni innan lykilkerfa.
  • Fjölbreytt verkefni og áskoranir.
  • Sveigjanleika í starfi.
  • Starfsstöð í Reykjavík.
Auglýsing birt11. júlí 2025
Umsóknarfrestur22. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch..NETPathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.C#PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KerfishönnunPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Tölvuöryggi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar