Hótel Varmaland
Hótel Varmaland

Hótelstjóri

Eigendur Hótels Varmalands leita að öflugum, drífandi og þjónustumiðuðum leiðtoga til að taka við starfi hótelstjóra og leiða daglegan rekstur hótelsins. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á fólki, þjónustu og rekstri.


Um hótelið

Hótel Varmaland er 4 stjörnu hótel staðsett í hjarta Borgarfjarðar, steinsnar frá ys og þys höfuðborgarinnar. Hótelið býður gestum sínum upp á fyrsta flokks gistingu og einstaka upplifun. Veitingastaður hótelsins státar af stórbrotnu útsýni til allra átta þar sem þjónusta, gæði og gestrisni eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegum rekstri hótelsins og stjórnun starfseminnar
  • Umsjón með mannauðsmálum, ráðningum og þjálfun starfsfólks
  • Ábyrgð á markaðs- og sölumálum, markmiðasetningu og eftirliti
  • Gerð fjárhagsáætlana og kostnaðareftirlit
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu, gæði og jákvæða upplifun gesta
  • Stuðla að öflugri liðsheild og jákvæðri vinnustaðamenningu
  • Eftirlit með þjónustu- og gæðamálum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnunar- og rekstrarstörfum innan ferðaþjónustu er æskileg
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, fleiri tungumál er góður kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð

Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma: 511-1225.

Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Varmalandi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar