
Verkís
Hjá Verkís starfa um 400 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.

Hönnuður - Stjórnkerfi og sjálfvirkni
Við leitum eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi með reynslu í hönnun, prófunum og gangsetningum stjórnkerfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í hönnun stjórnkerfa í virkjunum, iðnaði og veitukerfum og gerð deiliteikninga, forritun PLC stýrivéla og hönnun SCADA kerfa ásamt prófunum og gangsetningu þeirra. Hluti starfsins fer fram á verkstað. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af stjórnkerfa og sjálfvirknihópi Orku- og Iðnaðarsviðs.
Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðimenntun á sviði rafmagns eða hátækni
- Reynsla í hönnun stjórnkerfa
- Reynsla af prófunum og gangsetningum stjórnkerfa
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af forritun stýrivéla er kostur
- Reynsla af stjórnun verkefna er kostur
- Próf í rafiðn er kostur
- Reynsla af vinnu við stýrirásateikningar er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
TæknifræðingurVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (7)

Rafvirki óskast
Rýmd ehf

Sérfræðingur í raforkukerfum
Verkís

Automation Engineer
Borealis Data Center ehf.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Instrumentation, Controls & Power Electronics Role
Hydram Dynamics

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics