

Hlutastarf í áfyllingu fyrir Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Coca-Cola á Íslandi auglýsir eftir helgarstarfsmanni til að sinna áfyllingu á vörum fyrirtækisins í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er aðra hverja helgi. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áfylling og framsetning í verslunum
- Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
- Tryggja nægt vöruframboð í verslunum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt bílpróf
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
- Stundvísi og reglusemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Drifkraftur og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Frekari upplýsingar veitir Stefán Ragnar Guðlaugsson [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.













