

Hlutastarf í afgreiðslu
Sækið um með því að senda email með bréfi ásamt ferilskrá á [email protected].
Lilja Björk Jewellery leitar að traustum starfsmanni í afgreiðslu.
Lilja Björk Jewellery leitar að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna afgreiðslustarfi í verslun okkar.
Um er að ræða hlutastarf fyrir einstakling 20 ára eða eldri.
Unnið er annan hvern laugardag og 1–3 virka daga í viku frá kl. 15:00–18:00.
Í sumar getur starfshlutfall aukist, og sumar vikur verður starfið í fullu starfi.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Er sjálfstæður og ábyrgur í vinnubrögðum
- Er sveigjanlegur varðandi vinnutíma
- Hefur góða þjónustulund
- Talar íslensku og ensku
Helstu verkefni eru m.a.:
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Að halda verslun snyrtilegri
- Almenn verslunarstörf
- Einnig ef áhugi er á, aðstoð á verkstæði við ýmis verkefni.
- Hefur áhuga á að aðstoða með markaðssetningu.
Þetta starf hentar vel þeim sem eru í skóla og eru ekki að leita sér af fullu starfi í sumar. Einnig ef áhuga er á skartgripum og hönnun er kostur. Eða markaðssetningu.
Verslunin er lokuð á helstu frídögum.
Helst að geta verið sveigjanlegur vikuna 7-16júní. Allan júlí mánuð og vikuna 10-17 ágúst vegna sólmyrkvans. Gert er ráð fyrir fríi yfir Verslunarmannahelgina:).
Lilja Björk Jewellery er sjálfstætt starfandi skartgripaverslun með verkstæði á staðnum. Við erum nýbúin að opna verslun á Laugavegi 72, eftir að hafa verið á Baldursgötunni í ár.
Lilja hefur sjálf séð um að reka búðina og er nú að leitast eftir einstaklingi sem getur komið og aðstoð í verslun þegar hún getur ekki verið á staðnum.
Eftir sumarið væri fastar vaktir annan hvern laugardag, miðvikudaga og fimmtudaga frá 15:00-18:00 og annan hvern föstudag 15:00-18:00. Með rólegu túrista tímabili væri hægt að minnka vaktirnar sem er yfirleitt október, janúar og febrúar. Desembermánuður er einnig nóg að gera, fullkomið þegar jólaprófin eru búin að taka fleiri vaktir.
Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Stúdent eða álíka
Íslenska
Enska










