

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd starfsmanna
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi til að sinna heilsuvernd starfsmanna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Um er að ræða 40% starf þar sem viðkomandi gegnir lykilhlutverki í að efla heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Hjúkrunarfræðingurinn mun hafa umsjón með verkefnum tengdum heilsuvernd starfsmanna með áherslu á skimanir, bólusetningar, smitvarnir og fræðslu. Starfið felur einnig í sér tækifæri til að móta og þróa starfsmannaheilsuvernd innan HH. Í hlutverkinu felst virk þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og þróun ferla sem styðja við heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi.
Viðkomandi starfar undir framkvæmdastjóra mannauðs og vinnur náið með stjórnendum og þverfaglegum teymum. Í starfinu mun reyna á fagmennsku, frumkvæði og hæfni til að hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenningu og starfsumhverfi.
- Framkvæma og halda utan um heilsuverndarsamtöl (valkvæð fyrir starfsmenn)
- Skipuleggja og fylgja eftir úttektum á starfsaðstöðu, t.d. öryggi og sóttvarnir
- Sjá um skimanir og bólusetningar, þ.m.t. fyrir nýja starfsmenn
- Veita fræðslu og ráðgjöf um heilsu, forvarnir og lífsstíl
- Styðja við öryggi starfsmanna og fylgja eftir atvikum og úrbótum
- Halda yfirlit yfir langvinn veikindi og styðja stjórnendur í eftirfylgni
- Taka þátt í öryggisnefnd
- Koma að þróun ferla, stefnu og umbótaverkefna í starfsmannaheilsuvernd
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu
- Þekking og reynsla af sóttvörnum, forvörnum og heilsuvernd á vinnustöðum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og fagmennska
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn góð tölvufærni
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska

















