
Rimaskóli
Rimaskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10.bekk og eru nemendur rúmlega 500. Skólinn er hjartað í hverfinu og hefur á að skipa glæsilegt húsnæði og skólalóð. Skólinn er þekktur fyrir frábæran árangur í skák og hafa fjölmargir nemendur skólans fengið viðurkenningu á því sviði. Skólinn er að innleiða uppeldi til ábyrgðar og er að vinna með hvernig við berum ábyrgð á eigin hegðun. Skólinn er jafnframt þátttakandi í vinaliðaverkefninu og skipuleggja nemendur leiki og stjórna í frímínútum. Kennarar skólans eru að innleiða leiðsagnarnám og er sífellt verið að skoða hvernig við getum komið betur til móts við ólíka nemendur í fjölbreytilegu samfélagi.

Heimilisfræðikennara vantar - kanntu brauð að baka...?
Okkur í Rimaskóla vantar öflugan aðila til að kenna heimilisfræði hjá nemendum í 5. - 10.bekk.
Kennari sér um að kenna eftir aðalnámskrá grunnskóla, sér um efniskaup og heldur utan um heimilisfræðistofu.
Kennari skipuleggur kennsluna, kennir krökkunum ýmis verk sem felast í eldhússtörfum og fer yfir heilsusamlegt líferni.
Um er að ræða tímabundin forföll til áramóta en gætu orðið út þetta skólaár.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu aðalnámskrár og námsmati
- Sitja í teymi um heilsueflandi skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara - ef ekki fæst kennari með leyfisbréf þá skoðum við einstaklinginn sem er hæfastur af umsækjendum
- Menntun og hæfni til kennslu heimilisfræði
- Hæfni í teymiskennslu
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
Sund og menningarkort.
Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Rósarimi 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
EldhússtörfKennariKökugerðariðnMatreiðsluiðn
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli

Mynlistarkennari
Selásskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Verkefnastjóri listasmiðju (atelierista)
Leikskólinn Maríuborg

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Kennari óskast í hönnun og smíði við Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Kennari óskast til starfa - frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Forfallakennari óskast til starfa við Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í Landakotsskóla
Landakotsskóli