Heilbrigðisgagnafræðingur í hlutastarf

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum heilbrigðisgagnafræðingi til starfa.

Það kemur einnig til greina að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði. Starfið felst í ritun og utanumhaldi sjúkraskráa, kerfisumsjón Sögukerfis, umsýslu rafrænna gagna auk símsvörunar og móttöku viðskiptavina.

Ert þú rétta manneskjan?

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er löggildur heilbrigðisgagnafræðingur eða nemi í heilbrigðisgagnafræði.
  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og nýtur þess að skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini.
  • Er skipulagður, sjálfstæður og getur unnið undir álagi.
  • Hefur góða almenna tölvukunnáttu og góða færni í íslensku og ensku.
  • Þekkir sjúkraskrárkerfið Sögu (kostur)

Um framtíðarstarf er að ræða í 50-70% starfshlutfalli á opnunartíma Lækningar, með möguleika á frekari afleysingum eftir samkomulagi.

Við hlökkum til að heyra frá þér! Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og góðu vinnumhverfi.

Frestur til að sækja um er til og með 9. febrúar en unnið verður úr umsóknum jafn óðum og þær berast.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 590-9200 og á [email protected]

Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Við bjóðum upp á nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur og fullkomnar skurðstofur í faglegu og vinalegu umhverfi.

Auglýsing birt28. janúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar