Heilbrigðisgagnafræðingur

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum heilbrigðisgagnafræðingi til starfa.

Það kemur einnig til greina að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði. Um er að ræða ca. 80% hlutastarf á opnunartíma Lækningar sem er frá kl. 8:00 til 16:00 virka daga. Starfið felst í ritun og utanumhaldi sjúkraskráa, umsýslu rafrænna gagna auk símsvörunar og móttöku viðskiptavina.


Ert þú rétta manneskjan?
Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er löggildur heilbrigðisgagnafræðingur eða nemi í heilbrigðisgagnafræði.
  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og nýtur þess að skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini.
  • Er skipulagður, sjálfstæður og getur unnið undir álagi.
  • Hefur góða almenna tölvukunnáttu og góða færni í íslensku og ensku.


Við hlökkum til að heyra frá þér! Starfið er laust nú þegar og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Einnig er hægt að hefja störf seinna í sumar en þó eigi síðar en 1. september. Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og góðu vinnumhverfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 590-9200 og á [email protected].


Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Við bjóðum upp á nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur og fullkomnar skurðstofur í faglegu og vinalegu umhverfi.

Auglýsing birt24. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar