
Österby hár ehf
Österby er hárgreiðslustofa og verslun á Selfossi með sögu allt frá árinu 1964. Við bjóðum upp á faglega hársnyrtiþjónustu og fjölbreytt úrval af vönduðum hár- og húðvörum frá þekktum vörumerkjum, bæði í verslun okkar og á osterby.is. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, faglega ráðgjöf og að hjálpa viðskiptavinum að finna vörur sem henta þeirra þörfum. Á hárgreiðslustofunni tökum við á móti viðskiptavinum án tímapöntunar.

Hársnyrtir óskast á Selfossi
Österby hár ehf. á Selfossi leitar að metnaðarfullum hársnyrti til starfa á hárgreiðslustofu okkar. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðu teymi þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf.
Við vinnum með þekktum vörumerkjum á borð við Moroccanoil, Maria Nila, Kérastase, K18, Eleven Australia og Davines.
Helstu verkefni:
- Klipping, litun og strípur
- Ráðgjöf til viðskiptavina um hárumhirðu og hárvörur
- Hármeðferðir og umhirðumeðferðir fyrir konur
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í hársnyrtiiðn eða sambærileg menntun
- Reynsla af strípum og vinnu með dömuhár
- Hæfni til að veita faglega ráðgjöf og framkvæma hármeðferðir
- Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Snyrtimennska, stundvísi og jákvætt viðmót
- Góð færni í íslensku eða ensku
Við bjóðum:
- Gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast í starfi
- Vinnu með vinsælum og vönduðum vörumerkjum
Starfshlutfall: 50-100%
Vinnutími: Frá kl. 8:00 til 17:00, mánudaga til föstudaga
Upphaf starfs: Eftir samkomulagi
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Job benefits
Hádegismatur innifalinn
Gott vinnuumhverfi og góður starfsandi
Vinna með vinsælum og vönduðum vörumerkjum
Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur13. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Austurvegur 33, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
HárgreiðslaHárlitunHársnyrtiiðnHársnyrting
Starfsgreinar
Starfsmerkingar