

Hafnsögumaður/skipstjóri – Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða til starfa hafnsögumann/skipstjóra í 100% starf. Starfið felst í leið- og hafnsögu skipa, skipstjórn og annarri hafnarþjónustu, móttöku og þjónustu skipa í Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvík. Daglegur vinnutími er frá 07.30 – 15.30 virka daga, auk þess sem unnið er á bakvöktum, kvöld, nætur og helgar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hafnsaga skipa til og frá Hafnarfjarðarhöfn/Straumsvík og einnig aðstoð við nærliggjandi hafnir s.s. Helguvík.
- Skipstjórn á hafnsögubátum hafnarinnar, Hamri og Þrótti.
- Sólarhringsvaktstjórn á 3ja vikna fresti. Stjórn með daglegum störfum í samráði við hafnarstjóra og vakthafandi verkstjóra hafnarstarfsmanna.
- Ábyrgð á sólarhringsvaktsíma hafnarinnar á hafnsöguvakt og önnur stjórnunarstörf í umboði hafnarstjóra.
- Verndarfulltrúi í siglingavernd á öryggissvæði hafnarinnar – samskipti við Samgöngustofu og aðrar stofnanir sem málið snertir.
- Stjórnar umferð skipa um höfnina og ákveður legustað þeirra og færslur innan hafnar í umboði hafnarstjóra í samráði við skipstjórnendur og umboðsaðila/flutningaaðila.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Skipstjórnarréttindi D ( 3 stig)
- Víðtæk reynsla af skipstjórn
- Víðtæk þekking á skipaflota og sjávarútvegi
- Góð reynsla af stjórnun og stjórnunarhæfileikar
- Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
- Almenn ökuréttind
- Námskeið í Slysavarnarskóla sjómanna
- Góð þjónustulund, samskipta- og samstarfshæfni
- Geta til að vinna undir álagi og takast á við krefjandi aðstæður
- Gott líkamlegt atgervi/hreysti til að takast á við krefjandi aðstæður/verkefni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn góð tölvukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag skipstjórnarmanna. Nánari upplýsingar veita Lúðvík Geirsson hafnarstjóri, [email protected] og Ágúst Ingi Sigurðsson yfirhafnsögumaður í síma 414-2300.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 13. mars 2026.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnarvernd á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar þarf sakavottorð að fylgja með umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Íslenska

















