
Hafnarvörður / Hafsögumaður
Staða hafnarvarðar/hafsögumanns við Stykkishólmshöfn er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta.
Starfið felur í sér hafsögu skipa um hafnarsvæðið, almenna starfssemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hafnarvörður/hagsögumaður vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun ásamt skráningu og skýrslugerðum sem við kemur allri umferð um hafnarsvæðið og hafsögu. Gerir reikninga og sendir út til viðskiptavina. Sinnir viðhaldi og framkvæmdum á hafnarbökkum og hafnarmannvirkjum eftir þörfum.
Hluti af starfinu er einnig m.a. öryggiseftirlit á hafnarsvæðum og vinna að umhverfis- og öryggismálum og mengunarvörnum. Hafnarvörður/hafsögumaður sinnir jafnframt ýmsum verkefnum, s.s. raða skipum í höfn, binda skip við bryggju og afgreiða vatn og rafmagn til skipa.





