
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Við önnumst verkefni á borð við byggingar, virkjanir, álversframkvæmdir og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúargerðar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Gröfumenn á belta- og hjólagröfu
Ístak leitar að reyndum gröfumönnum á belta - og hjólagröfu til starfa á hálendinu og á Reykjanesi.
Ístak leitar að ábyrgum og reyndum gröfumönnum á belta - og hjólagröfu sem vilja taka þátt í fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt verkefni hjá öflugu fyrirtæki á sviði mannvirkjagerðar.
Starfið felur í sér vinnu við jarðvinnu og uppbyggingu innviða með áherslu á öryggi, gæði og góð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og notkun belta - og hjólagröfu.
- Jarðvinna og undirbúningur framkvæmda.
- Daglegt eftirlit með vinnuvél og umhirða hennar.
- Fylgja öryggisreglum og verklagi fyrirtækisins.
- Samvinna við verkstjóra og aðra starfsmenn á verkstað.
- Önnur verkefni á vinnustað sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun beltagröfu og hjólagröfu er skilyrði
- Reynsla af stjórnun annarra gerða stórra vinnuvéla er kostur
- Gild vinnuvélaréttindi er skilyrði
- Gilt ökuréttindi (B-flokkur) eru skilyrð, meirapróf kostur.
- Reynsla af jarðvinnu er kostur.
- Ábyrgðarkennd og sjálfstæð vinnubrögð.
- Þekking á notkun GPS vélstýringa er skilyrði.
- Mjög góð enskukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er kostur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Öryggisvitund og metnaður fyrir vönduðum vinnubrögðum.
- Önnur starfsreynsla úr byggingariðnaði er kostur.
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjanesviti-íbúðarh , 233 Reykjanesbær
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Þorlákshöfn
Sigölduvirkjun 165348, 851 Hella
Starfstegund
Hæfni
ÖkuréttindiVinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.