BIOEFFECT ehf.
BIOEFFECT ehf.
BIOEFFECT ehf.

Grafískur hönnuður

BIOEFFECT leitar að skapandi og öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við markaðsteymi félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í grafískri hönnun, þar sem viðkomandi kemur að þróun og framleiðslu á markaðsefni sem styður við ímynd og markmið félagsins á alþjóðlegum mörkuðum.

BIOEFFECT eru margverðlaunaðar íslenskar húðvörur sem byggja á íslensku hugviti, vísindum og virkni. Sérstaða vörulínunnar er virka innihaldsefnið, BIOEFFECT EGF, sem framleitt er með aðferðum plöntulíftækni í gróðurhúsi ORF Líftækni á Íslandi. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og því gegnir íslenska vatnið einnig lykilhlutverki í hreinleika varanna. BIOEFFECT húðvörurnar eru seldar um allan heim, í 21 landi og hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir gæði og virkni. Alls starfa um 55 starfsmenn hjá félaginu, flestir á Íslandi en BIOEFFECT er einnig með starfsstöðvar í London og New York.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og framleiðsla á fjölbreyttu markaðs- og kynningarefni
  • Þátttaka í mótun og framsetningu markaðsefnis fyrir vörur og herferðir
  • Þátttaka í hugmyndavinnu, framkvæmd markaðsverkefna og viðburða í samstarfi við markaðsteymi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla í grafískri hönnun
  • Reynsla af hugmyndavinnu og þróun skapandi efnis
  • Góð kunnátta í miðlun efnis á samfélagsmiðlum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur fyrir vistvænar samgöngur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Góður starfsandi og líflegt starfsumhverfi
  • Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt1. júlí 2025
Umsóknarfrestur8. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Víkurhvarf 7, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FigmaPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.IllustratorPathCreated with Sketch.InDesignPathCreated with Sketch.LightroomPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.PhotoShopPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar