

Gjaldkeri/Bókhald/Skrifstofufulltrúi
Stjórnsýsla Vopnafjarðarhrepps auglýsir laust til umsóknar mikilvægt starf á skrifstofu
sveitarfélagsins. Starfið felst aðallega í bókun, greiðslu og gerð reikinga ásamt öðrum
fjármálatengdum skrifstofustörfum. Stjórnsýsla sveitarfélagsins byggir á
sveitarstjórnarlögum, samþykktum sveitarfélagsins, og ýmsum almennum lögum og
reglugerðum s.s., upplýsinga- og stjórnsýslulögum, lögum um persónuvernd o.s.frv.
• Bókanir og greiðslur reikninga
• Útgáfa reikninga og innheimta
• Móttaka og færslur á greiðslum
• Uppgjör og upplýsingar um stöðu viðskiptareikninga
• Bókun og innheimta ýmissa deilda
• Önnur fjármálatengd störf á skrifstofu.
• Háskólamenntun eða önnur menntun/reynsla sem nýtist í starfi, er mikill kostur
• Mjög góð þekking á bókhaldi, afstemmingum og fjármálum sveitarfélaga
• Þekking og reynsla á gæða- og skjalastjórnun, gerð verkferla og innleiðing kostur
• Góð tölvufærni ásamt þekkingu/reynslu á notkun Sharepoint ofl.þ.h., er mikilvæg
• Þjónustulund ásamt mjög góðri samskipta- og samvinnufærni er mjög mikilvæg
• Jákvætt viðhorf, frumkvæði og drifkraftur
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta

