Gigtarfélag Íslands fta.
Gigtarfélag Íslands fta.
Gigtarfélag Íslands fta.

Gigtarfélag Íslands óskar eftir sjúkraþjálfara

Gigtarfélag Íslands óskar eftir sjúkraþjálfara í 70 - 100% starf. Gigtarfélag Íslands hefur undanfarið gengið í gegnum miklar breytingar. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn og félagið hefur flutt í nýuppgert og hentugt húsnæði í Brekkuhúsum 1 í Reykjavík þar sem aðgengi og aðstaða er til fyrirmyndar. Mikil tækifæri eru til að móta starfsemi sjúkraþjálfunardeildar félagsins á nýjum stað og leigan hjá okkur er mjög hagstæð. Flestir skjólstæðingar sjúkraþjálfunarinnar er fólk á öllum aldri með gigtarsjúkdóma og er þetta því gott tækifæri fyrir sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á gigt. Margir eru í langtímameðferð hérna hjá okkur og því gefst tækifæri til að vinna með hvern einstakling til lengri tíma. Félagið hefur einnig yfir að ráða litlum sal þar sem hægt er að sinna hópþjálfun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka sjúklinga og meðferð ásamt öðru sem tilheyrir starfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf

Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

 Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

Frábært og skemmtilegt samstarfsfólk 😀

Auglýsing birt7. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Laun (á mánuði)500.000 - 2.000.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Brekkuhús 1, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Skyndihjálp
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar