Kennarasamband Íslands
Kennarasamband Íslands

Fulltrúi í teymi félags- og kjaramála

Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf fulltrúa í teymi félags- og kjaramála á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á réttindamálum launafólks og kjarasamningum.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við KÍ, aðildarfélög þess og félagsfólk. Mikilvægt er að viðkomandi hafi framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi ríkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til félagsfólks KÍ á sviði kjara-, réttinda- og launamála
  • Móttaka mála frá félagsfólki og málum beint í réttan farveg
  • Útreikningar varðandi launakröfur og kjarasamninga
  • Tekur saman og færir inn  á vef KÍ og aðra miðla upplýsingar um efni sem tengist kjörum og réttindum félagsfólks
  • Aðstoðar við undirbúning þinga, funda, fræðslu og ráðstefna á vegum KÍ
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði mennta- og/eða félagsvísinda
  • Reynsla af þjónustu og ráðgjöf
  • Þekking og/eða reynsla af túlkun kjarasamninga
  • Reynsla af launaútreikningum æskileg
  • Reynsla af kennslu og/eða stjórnun innan skólakerfis kostur
  • Reynsla af starfi innan stéttarfélags kostur
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi 
  • Jákvæðni og rík þjónustulund 
  • Metnaður og sveigjanleiki í starfi 
  • Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, jafnt í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar