
Kúlan félagsmiðstöð
Félagsmiðstöðin Kúlan er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar Kópavogsbæjar. Félagsmiðstöðin er staðsett í Kóraskóla. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks. Lögð er áhersla á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði. Í félagsmiðstöðinni er bæði boðið upp á opið starf og hópastarf, sem miða bæði að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð.
Kópavogsbær er barnvænt sveitarfélag. Félagsmiðstöðvar Kópavogs hafa greinar Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna að leiðarljósi í öllu sínu starfi, og vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og ungmenni.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - hlutastarf
Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð
Félagsmiðstöðin Kúlan óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda frá og með 1. september næstkomandi.
Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í 5.-10. bekk í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
Um er að ræða hlutastarf og er vinnutími á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:00-22:30 og annan hvern föstudag klukkan 19:00-23:30.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og frístundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og annað starfsfólk.
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
- Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
- Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
- Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Diplómanám í uppeldis- eða tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
- Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
Auglýsing birt11. ágúst 2025
Umsóknarfrestur25. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Valkvætt
Staðsetning
Vallakór 12, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð

Félagsmiðstöðin Fókus, hlutastarf
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Frístundaráðgjafi í tímavinnu
Fjölskyldusvið

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir starfsfólki í Frístund
Urriðaholtsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla
Lindaskóli

Starfsmaður í frístundaþjónustu við ungmenni með fötlun
Suðurnesjabær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Frístundamiðstöðin Miðberg

Stuðningsfulltrúi í Arnarskóla – Sérhæfður stuðningur fyrir nemendur með mikla stuðningsþörf
Arnarskóli

Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari
heilsuleikskólinn Urriðaból II