RÚV
RÚV
RÚV

Fréttamaður - sumarstörf

Fréttastofa RÚV flytur fréttir í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum allan sólarhringinn alla daga ársins og færir landsmönnum nýjustu tíðindi og fréttaskýringar af innlendum og erlendum vettvangi.

Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingum sem hafa góða framsögn og eru vel ritfærir. Starfið felst í að afla frétta og miðla þeim í sjónvarpi, útvarpi, á vef og á samfélagsmiðlum.

Hjá RÚV starfar fjölbreyttur hópur fréttafólks með mikla þekkingu og reynslu í kraftmiklu, skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Við óskum eftir öflugu fréttafólki í sumarstörf á starfsstöðvum RÚV í Reykjavík og á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öflun og vinnsla frétta.
  • Miðlun frétta í sjónvarpi, útvarpi, á vef og á samfélagsmiðlum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af blaða- og fréttamennsku er kostur.
  • Áhugi á samfélagsmálum og málefnum líðandi stundar.
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð almenn tungumálaþekking.
  • Góð almenn tölvuþekking og vilji til að tileinka sér nýja tækni.
  • Góð framsögn.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna hratt og vel. 
Auglýsing birt30. janúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Hólabraut 13, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar