
Framtíðarstarf Saltara hjá Norðursalti
Norður & Co ehf. leitar að drífandi og ábyrgðarfullum einstaklingi í framtíðarstarf saltara við Norðursalt á Reykhólum. Um er að ræða 100% starf eða eftir samkomulagi. Starfið er laust frá 1. maí 2026 eða fyrr. Vinnutími er 8 - 16, unnið er eina - tvær helgar í mánuði.
Um fyrirtækið:
Norður & Co ehf. er framleiðslufyrirtæki sem framleiðir lífrænt vottað sjávarsalt til manneldis, þekkt undir nafninu Norðursalt, Arctic Sea Flakes. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði um 5 manns.
Við leitum að einstaklingi sem:
Hefur reynslu af sambærilegum störfum
Er lipur í mannlegum samskiptum
Sýnir frumkvæði og vinnur sjálfstætt
Er jákvæður og snyrtilegur
Vinna við framleiðsluferli salts samkvæmt verklagsreglum og gæðastöðlum.
Hlaða og afhlaða hráefni og fullunnar vörur.
Fylgjast með vélum og tækjum, tilkynna bilun eða frávik til yfirmanns.
Þrífa og viðhalda vinnusvæði, tækjum og búnaði.
Pakka vörum samkvæmt gæðastöðlum.
Aðstoða við birgðatalningu og skráningu.
Fylgja öllum öryggis-, gæðastöðlum og vinnuverndarkröfum.
Reynsla af framleiðslu- eða lagerstörfum er kostur
Góð líkamleg heilsa og geta til að lyfta þungum hlutum
Færni til að vinna sjálfstætt og í hópi
Nákvæmni ábyrgð og góð vinnubrögð
Vilji til að fylgja verklagsreglum og öryggisreglum
Íslenskukunnátta
Fríðindi; Norðursalt getur útvegað húsnæði eða aðstoðað við milligöngu vegna húsnæðis. Aðgangur að ávöxtum á vinnutíma.
Íslenska










