

Framkvæmdastjóri
Stjórn Betri samgangna ohf. leitar að framsýnum leiðtoga til að taka virkan þátt í stórfelldri uppbyggingu innviðasamgangna á höfuðborgarsvæðinu með m.a. borgarlínu, göngu- og hjólastígum, umferðastýringu og stofnvegaframkvæmdum.
Framkvæmdastjóri skal hafa skýra sýn á undirbúning og framkvæmd verkefna félagsins ásamt frumkvæði og metnaði til að sýna árangur og kraft til að hrinda þeim í framkvæmd. Viðkomandi þarf að hafa sýnt hæfni í samskiptum og samvinnu, breiða þekkingu, reynslu og metnað til að ná árangri í þágu samfélagsins. Framkvæmdastjóri skal gæta að kostnaði verkefna sáttmálans án þess að gengið sé á almennar gæðakröfur.
Starfssvið
- Ábyrgð á rekstri og stjórnun félagsins.
- Ábyrgð á heildstæðri áætlunargerð og áhættustýringu.
- Yfirumsjón með samræmingu verkefna milli sveitarfélaga og mat á forgangsröðun.
- Eftirfylgni gagnvart sveitarfélögum um nauðsynlegar breytingar á skipulagsáætlunum.
- Yfirumsjón innheimtu, flýti- og umferðargjalda á höfuðborgarsvæðinu, verði ákveðið með lögum að leggja slík gjöld á.
- Yfirumsjón með samningsgerð við hagaðila.
- Samskipti við hagaðila, þ.m.t. við Vegagerðina.
- Undirbúningur stjórnarfunda og eftirfylgni stjórnarákvarðana.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Víðtæk og árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri, stefnumótun og áætlanagerð.
- Þekking á fjármögnun og rekstri umfangsmikilla verkefna.
- Reynsla og þekking á að leiða viðamikil þróunarverkefni og samningum sem fylgja er kostur.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Reynsla af framkvæmdum er kostur.
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamstarfi er kostur.
- Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Betri samgöngur ohf. er opinbert hlutafélag sem stofnað var til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við samgöngusáttmála sem ríkið annars vegar og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hins vegar gerðu með sér. Félagið hefur yfirumsjón með framkvæmdum vegna uppbyggingar á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fjármögnun þeirra.
Markmið félagsins er að stuðla að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta. Auk þess að vinna að auknu umferðaröryggi og stuðla að því að loftslagsmarkmiði um sjálfbært og kolefnislaust borgarsamfélag verði náð. Félaginu er ætlað að tryggja samstarf milli ríkis og sveitarfélaga um skilvirka uppbyggingu samgönguinnviða. Félagið hefur yfirumsjón með framkvæmdunum og fjármögnun þeirra m.a. með yfirtöku og þróun á landi við Keldur í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars nk.
Við hvetjum áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Enska
Íslenska

